jonkijaxl.bloggar.is
Helgin 13. - 15. aprílJón Ingi Ţrastarson
Ég er kominn með nóg af þessum soralíð sem getur ekki drullast til að þvo á sér hendurnar eftir að það er búið að pissa. Maður þorir valla að taka í nokkurn hún sem er notaður af almenningi af ótta við að vera koma við skaufann á einhverjum. Afhverju getur þetta lið ekki drullast til að þvo sér um helvítis hendurnar?!?!?! Hversu tímabundinn ertu ef þú getur ekki tekið 2 mín af lífi þínu í að þvo þér um hendurnar á hverjum degi?? Þætti gaman ef Gallup myndi gera skoðanakönnun um það hversu margir sleppa því að þvo sér. Ekki eins og það sé hægt því allir myndu eflaust segja „Já ég þvæ mér alltaf“ þó svo að það sé bara hauga vitleysa!Annars góð helgi. Ætluðum að vera í RVK á föstudeginum. En svo var Bjarki einn heima og við skelltum okkur bara í smá gleði sem endaði eins og alltaf á Mörkinni! Jón Valur var á svæðinu og var því ekki vit í neinu nema að ræða um pólitík. :)
Laugardagurinn byrjaði í smá þyknu þó aðalega hjá Bryndísi en svo drifum við okkur í Gerði. Ætluðum að fara hjóla smá en þá var ekkert bensín á hjólunum og helvítis járnblendið gat ekki drullast til að borga á föstudaginn þannig að við áttum ekki einu sinni efni á bensíni! Þannig að við drifum okkuar bara aftur uppá Skaga og fórum í sund.
Svo núna eru 3 próf mán, þri og mið þarf ALLTAF þarf að vera svo gott veður þegar maður er að læra. En það er ljós í myrkrinu því á mið förum við í Ölfusborgir í bústað til að vera sem næst öllum hjólastöðunum og verður heldur betur tekið á því á mið, fim og föst í drykkjunni og auðvitað á hjólunum. Djakússý! Jeb beibí!
Nokkur vel valin atriði í einni klippu: http://youtube.com/watch?v=wyMImp9LTko
Jćja frábćrir páskar ađ baki og nú taka prófin viđ!Jón Ingi Ţrastarson
Brunuðum uppá skaga á föstudaginn og byrjuðum á að fara í Gerði að hjóla aðeins. Þar voru Inga, Gummi og Co. Gummi var ekki lengi að draga út sex hjólið þegar hann sá að við vorum með hjólin okkar og fengum við hann til að gera smá braut fyrir okkur. Það var helvítis frost í jörðinni og þorði maður ekkert að taka almennilega á því. En Gummi gerði svo helvíti góða braut að við vorum meira og minna í einhverju mega grasi sem maður vissi ekkert hvað var undir. Bryndísi tókst að krassa í þessu grasi og bæta við enn einum margbletti á sig.

Við gátum ekki verið lengi í Gerði því við vorum að fara í fest til Salvars. Rétt fyrir afmælið ákvað ég að raka mig sköllóttan var nefnilega ekki með neitt vax. Svo í afmælinu fengum við klikkaða kjúklinga súpu, verst var að á sama tíma var mamma að elda kalkún ;/ En stemningin var góð hjá Salvari og var mikið drukkið. Ætlaði reyndar að vera bara góður því að við ætluðum að fara að hjóla á laugardeginum á langasandi. En allt kom fyrir ekki og ég endaði á því að klára helvítis Gin flöskuna sem ég gaf Salvari í afmælisgjöf með Arnari Má. Svo eftir það var haldið á Mörkina (betur sleppt því). Man lítið eftir því þar en man eftir því að hafa þurft að labba heim í skíta kulda ný rakaður um hausinn. Svo þegar við vorum langt kominn á Garðabrautina kom Arnar á harða hlaupum framúr okkur. Þá var eitthvað komið af stað..

Svo á laugardeginum var ég svo þunnur og veikur og Bryndís tognuð í hendinni?? Afhverju veit enginn. Þannig að við slepptum alveg að fara á langasandinn að hjóla en fórum frekar um 3 leytið að horfa á. Alltaf jafn gaman að horfa á!! Svo mundi ég allt í einu eftir því að ég hafði séð Arnar á harða hlaupum eftir Garðabrautinni og ákvað að hringja í kauða og tjekka hvort það væri ekki allt í góðu. Viti menn þá var kallinn bara orðinn pabbi og læti. Þannig til hamingju Addi!!
Nú er maður bara búinn að liggja heima í flensu og ekkert búinn að geta gert rass. Sem er reyndar alveg helvíti fínt því það er búið að vera frekar leiðinlegt veður.
Myndir úr afmælinu hjá Salvari: http://public.fotki.com/bryndis0212/
PáskarJón Ingi Ţrastarson
| Búnir að vera geðveikir páskar. Tókum á móti páskonum snemma og fórum í Gerða á fimmtudaginn síðasta að hjóla á grasinu þar. Gerðu okkur helvíti fína braut úr einhverjum keilum sem Gummi hafði fundið útí fjöru. Og vorum að taka það upp og reyna bæta tímann okkar sem gekk ekkert allt of vel. En svo á sunnudaginn ákváðum við að fara með Nítró á æfingu. Mættum kl 10 í Essó og svo var stefnan tekin á Þorlákshöfn. Þetta var örugglega einn skemmtilegasti dagur sem ég hef upplifað því að brautin var snilld! Svo fengum ég og Bryndís helvíti góð tips hjá Hauki í Nítró og er maður bara farinn að ná þessu helvíti vel. Verst að skórnir mínir eru nr. 47 sjálfur nota ég nr. 43/4 og á mjög erfitt með að skipta um gír í þessum bomsum. Á mánudaginn var svo ákveðið að fara í Þykkvabæ á sandinn þar og þegar við vorum kominn í bæinn ákváðum við að hringja í Nítró og spyrja vega, vegna þess að þau eru alltaf þarna. Gaurinn sem svaraði var ekki alveg viss hvar þetta væri og sagði okkur að keyra eitthverja bandvitlausa leið og enduðum við í einhverjum mega torfærum með bæði hjólin í dragi. En svo hringdum við aftur og þá svaraði Tedda og hún var alveg með þetta á hreinu og sagði okkur hvaða leið við áttum að fara. Þegar við vorum kominn á sporið lá leiðin yfir einhvern svaka veg þar sem var skilti sem á stóð að aðeins 4x4 bílar gætu farið þarna yfir. ![]() Okkur leyst ekki á blikuna og báðum fólkið á næsta bæ um að geyma bílinn og við myndum keyra bara á hjólunum á sandinn. Þeim leist nú ekki alveg á það þannig að við kíldum bara á þetta á Corollunni og vitir menn það var kid’s stuff. Noprob. Og svo þegar á sandinn var komið virtist hann nú ekkert vera neitt svaka stór en ég ákvað að keyra aðeins yfir smá polla og eitthvað og þá blasti bara við endalaus sandur svona 4 km bara af SANDI!! GEÐVEIKT!! Við lékum okkur að gera svona áttur og gefa í og allan pakkann. Svo eftir dágóða stund var bensínið orðið frekar lítið hjá okkur og ákváðum við að fara að bílnum og bættum við bensíni á hjólið hennar Bryndísar. Ég átti nú ekki mikið eftir en ákvað að gefa þessu hálftíma. Við brunuðum aftur á sandinn og svo ákveð ég að fara útí enda! Hehe.. Var ekki mikið að spá. Þegar ég kem í endann og er að fara snúa við fer hjólið að hökta og svo loks drepst á því!!! Shit ég var ekki alveg að meika að labba einhverja 3 km með hjólið. Ég lagði af stað og labbaði svona 100m þegar Bryndís fann mig. Hún tók við hjólinu og ég brunaði í Þykkvabæ að kaupa bensín en þá kom í ljós að það er engin bensín stöð þar?!?!? Þannig að ég ákvað að bruna á hellu sem var í 17km fjarlægð. Þegar ég kom til baka var Bryndís að frosna enda búin að vera þarna í 50mín. En svo brunuðum við í bílinn og heim. Helvíti skemmtileg ferð. Og þetta er bara rétt að byrja verst að maður þarf að vinna á morgun og hinn ;/ |

Myndasíðan:
http://public.fotki.com/Bryndis86
Sagan endalausa!!Jón Ingi Ţrastarson
Jeminn eini! Lenti í svaka rifrildum í gær við eigendur dyralif.is (sem er ekki bara heima síða heldur búð). Þannig var það að ég benti Skúla og Mæju á að versla fiskabúr þar því það væri eflaust aðeins ódýrara en annarstaðar. Þau fóru og keyptu búr handa Gumma í Gerði í afmælisgjöf. Svo stuttu eftir að Gummi var búinn að fylla búrið að vatni þá springur helvítis draslið og allt vantið í gólfið. Við fórum öskuvond að skila því, þar sem það var ekki séns að þetta hafi verið okkur að kenna því það var farið með búrið eins og nýfætt barn á leiðinni til Gumma. Þegar við komum með búrið í Dýralíf.is þá var konan voða næs og melló en kallinn með einhvern dólg. Hann sagði að við hefðum misst búrið það væri eina skýringin en sagðist þó ætla gera við það. Við reyndum að útskýra fyrir honum hvernig þetta átti sér stað og hann sagði að þegar gler broti þá heyrist ekki NEITT!!! Hehe fúh! Hann sagðist vera vinna við að setja gler í íbúðar hús og væri að því allan daginn. Flott. Þá ætti hann að kunna þetta! Svo viku seinna förum við að ná í búrið og vorum ekkert að spá í að skoða ofaní það og þegar það var komið til Gumma og við ætluðum að fara setja í það vatn kom það í ljós að kíttið var útum ALLT! Hann hafði ekki einu sinni rænu á því að strjúka fingrinum eftir kíttinu til að gera þetta svoldið snyrtilegt fagmaðurinn sjálfur!!! Við alveg brjál fórum náttúrlega með búrið aftur í bæinn að skila því, ætluðum sko ekki að fara borga 14.500 fyrir eitthvað forljótt og meingallað búr. Ég og Beisó fórum að skila búrin og þá var konan bara ein og sagði ekki neitt nema það að kallinn hennar kæmi eftir smá og hann myndi bara hringja í okkur. Svo eftir svona 5 mín hringir hann í Beisó og segir honum að hann eigi ekkert að vera að skipta sér að þessu.. og jada jada jada!(Seinfeild:) Og við ættum bara að ná í búrið þar sem það kæmi ekki til greina að hann myndi laga það. Ég fór einn míns liðs að ná í búrið alveg öskuvondur skildi ekki hvurslags djöfulsins skítabúlla þetta væri. Þegar ég kom inní búðina spurði ég hvernig í ósköpunum stæði á því að þau gætu ekki lagað búrið þar sem þetta væri svo ljót og illa gert. Hann sagði mér bara að taka búrið. Ég sagði við hann að ég held nú að fólkið sem er að láta hann setja glugga í hjá sér myndi nú segja eitthvað ef kíttið væri uppá miðja rúðu hjá þeim, hann sagði að svona væri þetta gert og hann skildi þetta alltaf svona eftir sig. Ég sagði honum að ég tæki það ekki í mál að taka aftur við búrinu þar sem þau hefðu verið að borga fullt verð fyrir búrið og það væri gallað. Þá sögðu þau að þau hefðu ekkert borgað fullt verð. Þau gáfu þeim nefnilega smá afslátt sem ég bað um þegar búrið var keypt. Ég sagði þeim að það skipti ekki máli ég hefði beðið um afslátt vegna þess að þetta hafi verið sýningar búr. Þau sögðust ekki gera mun á sýningarbúrum eða öðrum en hann var nú samt fús að gefa mér afslátt á sýnum tíma. Svo sögðu þau að það hefði bara verið borgað 14.000 fyrir búrið og ég sagði þeim að það væri bull þar sem þau borguðu 14.500. Konan neitaði því og sagði að ég væri lygari og að konan (María) hefði sagst hafa borgað 14.000 fyrir það fyrst þegar við komum að kvarta. Ég sagði þeim að ég tæki ekki búrið og þau ættu að laga það. Þá sagði hann að eini möguleikinn á að þetta væri gallað væri ef búrið myndi springa strax og vatn væri sett í það. Ég sagði að það hefði gerst daginn eftir(var ekki alveg viss hélt það samt) þá sagði hún að við værum öll lygarar kæmum hér með 3 lygasögur og sagði að María hefði sagt að það hefði liðið vika (sem var reyndar rétt). Þá sagði ég oki en hverjar eru þá allavegana hinar sögurnar. Þá sagði hún að Beisó hefði sagt að við hefðum bara farið með búrið rétt í gegnum göngin en að María hefði sagt að Gummi ætti heima í Borgarfirði!!!! Ég sprakk úr hlátri tók upp síma og setta í record og spurði hvort hún vildi ekki segja þetta bull aftur ég vildi eiga þetta á recordi! Þá labbiði hún í burtu. Kallinn skipaði mér að fara út enda var ég orðinn verulega æstur. Þá kom konan aftur og spurði mig hvort ég gerði mig oft að fífli! Hehe.. Kallinn sagði mér að fara út og ég tók búrið og labbaði út. HVER ER RÉTTUR KAUPANDANS!!! Ekki neinn! Helvítis Bull shit!!!![]() Finns þessi mynd fanga svoldið steminguna.. |
Festen!Jón Ingi Ţrastarson
| Klikkað! Átti afmæli á Miðvikudaginn og ákvað ég að bjóða mömmu, Steinunni og Hákoni í mat til tengdó. ;) Við grilluðum Nýsjálenskar nautalundur sem voru GEÐVEIKAR!! svo var piparostasósa og salat með. Þetta var töluvert betra en á Hereford og gat maður líka fengið sér aftur á diskinn. Í eftirétt var páskaegg og hrís terta! það átti að vera súkkulaði terta líka en Skúli tengdó hellti kertavaxi yfir hana. ;) Svo eftir matinn gaf Bryndís mér ferð til ALICANTE!! jieah og erum við búin að finna okkur geðveikt hús með enka sundlaug og alles. Þetta hús tekur reyndar allt að 8 manns þannig að við erum að skoða hvort einhverjir kandidatar eru game í þetta. Flugið er ekkert dýrt og húsið er mjög ódýrt þar sem við erum að fara í okt. Eina málið er að við erum ekki komin með aldur til að leigja okkur bílaleigu bíl, en þetta er allt í gönguleið svo It's all good. Svo um helgina ætluðum við að taka okkur frí og fara hjóla þar sem þetta er fyrsta helgina sem ég á hjólið en þá var bara spáð fárviðri þannig að við unnum bara báða dagana og ætlum að taka okkur tvær næstu helgar í frí. Svo er mál málanna núna að það er byrjað að skrá í Klausturskeppnina víðfrægu og er stefnan sett á hana, en það er maðkir í mysunni mig vantar einhvern til að vera með mér í liði þar sem þetta er 6 tíma keppni. Þannig að það er OPEN SPOT í TEAM – JÓNKI! Allir sem hafa áhuga endilega láta í sér heyra, það eru nefnilega svo margir sem skoða þessa síðu. :) Catch you on the flip side!
Youtube vikunnar er http://youtube.com/watch?v=tth9krDtxII |
Honda CRF250R 2005 baby!Jón Ingi Ţrastarson
Jáhh kallinn bara kominn á Hondu! Það er ekkert annað verslaði mér bara eitt stk. Honda CRF250 2005 á Sunnudaginn.
Verst að maður missti af fólkinu
Catch you on the flip side!
Going once going tvice SOLD!Jón Ingi Ţrastarson
http://youtube.com/watch?v=8LU_T9ZgnVI læt fylgja með smá sýnidæmi um það þegar fólk er að reyna eitthvað sem það átti betur að láta ógert Catch you on the flip side! |
14. Mars nágast hamingja og friđur Blessi heimiliđ!!Jón Ingi Ţrastarson
Jám frekar langt síðan ég skrifaði síðast það er kominn mars og læti, styttist í daginn sem fólk er að tala um úti á götu. Hvaða dag spyrja margi Incubus að koma? Já vissulega en það er ekki sá dagur sem fólkið er að tala um heldur er það fæðingadagur snillings Alheimsins vissulega sá dagur sem er á vörum landans já ég er auðvitað að tala um Albert Einstein, en ekki hvern? Mig? Jú ég á auðvitað afmæli sama dag en fell algjörlega í skuggann á honum. En já ég og félagi minn Albert eigum afmæli 14. mars svaka spennandi kallinn að verða 128 ára and what not! Og ég 20. Gengur nú eitthvað brösulega að finna stað til að halda veizluna á en það er í góðu ef hún verður ekki núna þá verður hún bara í sumar, mikið meiri stemming fyrir því. Catch you on the flip side! |
Fyrsta frí helgin!Jón Ingi Ţrastarson
| Jáff helgin var klikkuð fyrsta frí helgin á árinu. Kallinn er búinn að vera ein peninga maskína undanfarnar helgar enda veitir ekki af þar sem maður er að velta því fyrir sér að fara versla sér nýtt hjól. En ég og Bryndís fórum allavegana að hjóla í Melasveit á laugardaginn voru ekki kominn fyrr en kl 14. og þá var kominn fjandans flóð. En það stoppaði okkur ekki í því að fara hjóla og tókst Bryndísi að fljúga á rassinn á stærðar svelli sem var þarna. Svo fórum við með hjólin uppí Gerð og tókum nokkra hringi og þar tókst mér að fljúga á hausinn, (það fylgir þessu). Fórum svo til Steinka um kvöldið og sátum við drykkju til svona 6 helvíti skemmtilegt það. Svo á sunnudeginum smókaði “Elítan” homma crewið indeed. Helvíti góður leikur og hafði ég ekki farið í fótbolta síðan í byrjun sumars. GG *5* |
PókerJón Ingi Ţrastarson
Góður póker um síðustu helgi. Við strákarnir kíktum til Stæner og tók smá geim. Það væri ekki frásögu færandi nema það að þegar Unnzi var kominn í dágóðann gróða þá "þurfti" hann endilega að hitta kjelluna allt í einu? Einu manneskjuna sem hann forðast eins og heitann eldinn. Svo hann beilaði með einhvern fimmara í gróða og skildi okkur eftir í súpunni. En það stoppaði ekki Johnny hann kom sá og sigaðir. Var kominn með 5þús í gróða.........og tapaði svo öllu :/ *gg* Gæs


Jiah. Búinn að selja fákinn. Það er ekkert annað. Komu tveir gaurar hér í gær að testa hjólið og gaurinn sem ætlaði að kaupa það datt á því og braut kúplings handfangið og rispaði plastið í döðlur. Það var ekkert vesen hann sagðist bara ætla að kaupa dýrið. Þetta
Jám frekar langt síðan ég skrifaði síðast það er kominn mars og læti, styttist í daginn sem fólk er að tala um úti á götu. Hvaða dag spyrja margi Incubus að koma? Já vissulega en það er ekki sá dagur sem fólkið er að tala um heldur er það fæðingadagur snillings Alheimsins vissulega sá dagur sem er á vörum landans já ég er auðvitað að tala um Albert Einstein, en ekki hvern? Mig? Jú ég á auðvitað afmæli sama dag en fell algjörlega í skuggann á honum. En já ég og félagi minn Albert eigum afmæli 14. mars svaka spennandi kallinn að verða 128 ára and what not! Og ég 20. Gengur nú eitthvað brösulega að finna stað til að halda veizluna á en það er í góðu ef hún verður ekki núna þá verður hún bara í sumar, mikið meiri stemming fyrir því.